Fotbolti.net
28.03.26 - 22:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mjólkurbikarinn: Dagur Hammer með tvennu í sigri Leiknis - Mæta bikarmeisturunum

Mjólkurbikarinn: Dagur Hammer með tvennu í sigri Leiknis - Mæta bikarmeisturunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mjólkurbikarinn
KFA og Leiknir eru komin áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir sigra í dag.

Lengjudeildarlið Leiknis fékk 5. deildarlið Smára í heimsókn. Staðan var markalaus í hálfleik en Axel Freyr Harðarson kom Leikni yfir snemma í seinni hálfleik.

Dagur Ingi Hammer Gunnarsson bætti öðru markinu við stuttu síðar og innsiglaði síðan sigurinn þegar rúmlega stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Leiknir heimsækir ríkjandi bikarmeistara Vestra í 32-liða úrslitum.

KFA, sem leikur í 2. deild í sumar, vann Sindra sem leikur í 3. deild. KFA heimsækir Lengjudeildarlið Fylkis í 32. liða úrslitum.
Mjólkurbikarinn: Ýmir skoraði tíu - Suðurnesjaslagur í 32-liða úrslitum
TENGT EFNI

Mjólkurbikarinn: Ýmir skoraði tíu - Suðurnesjaslagur í 32-liða úrslitum

Leiknir R. 3 - 0 Smári
1-0 Axel Freyr Harðarson ('50 )
2-0 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('56 )
3-0 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('73 )

KFA 1 - 0 Sindri
1-0 Simon Maas ('54 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.