Mainoo fær nýjan samning - Goretzka og Gomes orðaðir við Man Utd - Bremer og Kerkez við Liverpool
banner
sunnudagur 22. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 21. september
Mjólkurbikar karla
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 20. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 19. september
Lengjudeild karla - Umspil
miðvikudagur 18. september
Lengjudeildin - Umspil
mánudagur 16. september
Besta-deild karla
föstudagur 13. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Besta-deild karla
fimmtudagur 12. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
þriðjudagur 10. september
Undankeppni EM U21
Æfingamót í Slóveníu
mánudagur 9. september
Þjóðadeildin
laugardagur 7. september
Meistaradeild kvenna - forkeppni
Lengjudeild karla
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild kvenna
Æfingamót U19 karla
föstudagur 6. september
Þjóðadeildin
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 5. september
Æfingamót U19 karla
miðvikudagur 4. september
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
mánudagur 2. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
mánudagur 26. ágúst
Besta-deild karla
2. deild karla
fimmtudagur 22. ágúst
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
Lengjudeild kvenna
Sambandsdeild UEFA - Umspil
miðvikudagur 21. ágúst
2. deild karla
laugardagur 21. september
Engin úrslit úr leikjum í dag
fös 28.apr 2023 17:00 Mynd: Fótbolti.net - RMV
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 9. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. Njarðvík, 79 stig
10. Selfoss, 70 stig
11. Þróttur R., 58 stig
12. Ægir, 27 stig

9. Njarðvík
Njarðvík er með gríðarlega stóran hóp af sterkum leikmönnum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig nýjum þjálfara tekst að koma sínu handbragði á liðið og hvort leikmannahópurinn henti hans leikstíl eða hvort Arnar Hallsson þurfi að sníða sér stakk eftir vexti. Það er mikið púður lagt í Njarðvíkurliðið og augastaður á úrslitakeppninni.



Þjálfarinn: Arnar Hallsson tók við liðinu af Bjarna Jó eftir síðasta tímabil. Arnar er kröfuharður þjálfari sem leggur mikið upp úr því að menn fylgi því sem fyrir þá er lagt og staðið sé við þá hluti sem samþykktir eru. Hann var síðast þjálfari ÍR og þar á undan var hann hjá Aftureldingu.



Styrkleikar: Mikil reynsla, mikil gæði og það sannaði sig þegar liðið slátraði 2. deildinni í fyrra. Kjarninn er að miklu leyti sá sami en ofan á hann hefur komið slatti af leikmönnum. Hópurinn er rosalega stór, liðið er öflugt á heimavelli og gríðarlega sterkir í föstum leikatriðum með Marc McAusland fremstan í flokki.


Fyrirliðinn McAusland

Veikleikar: Kannski frekar spurningarmerki með þjálfarskiptin frekar en veikleiki, Arnar Halls tekur við og er hann ótrúlega fær í sínu fagi en hans hugmyndafræði rímar ekkert við það hvernig Njarðvík komst upp í fyrra og hvernig samsetningin á liðinu var. Það sýnir sig eflaust best í því hversu marga leikmenn hann hefur fengið til liðsins. Það er takmarkaður möguleiki á því verjast með varnarlínuna hátt uppi með McAusland í vörninni, hraði er ekki hans helsti styrkleiki. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig þeir púsla þessu saman, annaðhvort þarf Arnar að aðlaga sinn leikstíl mjög mikið að hópnum, eða þá að lykilmenn liðsins frá því í fyrra þurfa að sætta sig við öðruvísi hlutverk.

Lykilmenn: Markvörðurinn Robert Blakala, miðvörðurinn og reynsluboltinn Marc McAusland og sóknarmaðurinn öflugi Oumar Diouck.


Blakala í markinu

Fylgist með: Luqman frá Malasíu, eldfljótur sóknarmaður sem Malasíubúar binda stórkostlegar vonir við, ótrúlega ógnandi á ferðinni en virðist vera frekar hrár leikmaður, getur komið með þetta óvænta inn í Njarðvíkurliðið.


Luqman Hakim

Komnir
Alex Bergmann Arnarsson frá Víkingi (var á láni hjá ÍR)
Gísli Martin Sigurðsson frá Aftureldingu
Joao Ananias frá Albaníu
Luqman Hakim frá Kortrijk (á láni)
Magnús Magnússon frá Reyni S.
Oliver Kelaart frá Þrótti Vogum
Óskar Atli Magnússon frá FH
Rafael Victor frá Hetti/Hugin
Tómas Bjarki Jónsson frá Augnabliki
Tómas Þórisson frá Víkingi (lán)
Walid Birrou frá Þrótti Vogum
Þorsteinn Örn Bernharðsson frá KV


Rafael Victor kom að austan í vetur

Farnir
Bessi Jóhannsson í Víði
Einar Orri Einarsson í Reyni
Magnús Þórir Matthíasson hættur
Sölvi Björnsson í Gróttu (var á láni)

Líklegt byrjunarlið


Fyrstu þrír leikir Njarðvíkur:
5. maí Grótta - Njarðvík (Vivaldivöllurinn)
11. maí Njarðvík - Ægir (Rafholtsvöllurinn)
21. maí Grindavík - Njarðvík (Grindavíkurvöllur)
Athugasemdir
banner
banner