Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 08:25
Elvar Geir Magnússon
Sterkastur í 4. umferð - Stutt í að maður yrði skúrkur
Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði tvö og átti stoðsendingu gegn Stjörnunni.
Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði tvö og átti stoðsendingu gegn Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ótrúlega góður og sýndi gæði," stendur í skýrslu Fótbolta.net um Tryggva Hrafn Haraldsson í 4-2 útisigri Vals gegn Stjörnunni í gær. Valsmenn hafa unnið þrjá leiki í röð og Tryggvi var í stuði í Garðabænum.

Hann skoraði tvö mörk og átti stoðsendingu en hefði í raun átt að skora tvöfalt fleiri mörk því hann fór illa með góð færi í lok leiks. Hann er Sterkasti leikmaður umferðarinnar í boði Steypustöðvarinnar.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  4 Valur

„Mér er mjög létt, það er rétt metið hjá þér. Við vorum að verjast mikið og ég fæ þarna tvö góð færi til að gera út um leikinn og ég hefði átt að gera það. Þá verður maður náttúrulega stressaður,“ sagði Tryggvi víð Sýn eftir leikinn.

„Það er stutt á milli í þessu, maður var búinn að skora tvö en þarna var mjög stutt í að maður yrði skúrkur þannig að ég er mjög sáttur að við sigldum þessu heim."


Sterkustu leikmenn:
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)
Innkastið - Gulir en alls ekki glaðir
Slapp
banner
banner
banner