Fotbolti.net
28.05.04 - 09:25
Magnús Már Einarsson

Capello tekur við Juventus (Staðfest)

Tekur við Juventus.

Tekur við Juventus.

Canon
Fabio Capello stjóri Roma hefur skrifað undir þriggja ára samning við Juventus og mun taka við stjórastarfi félagsins. Capello sem að er 57 ára tekur við starfinu af Marcelo Lippi sem að hætti eftir nýafstaðið tímabil. Capello var reyndar ekki talinn vera á meðal þeirra líklegustu til að taka við Juventus en Didier Deschamps stjóri Monaco og Cesare Prandelli hjá Parma voru taldir líklegri til að taka við.
Capello er væntanlega orðinn þreyttur á fjárhagsstöðu Roma og fer því frá félaginu en liðið seldi nýlega Walter Samuel til Real Madrid og líklegt þykir að fleiri leikmenn eins og Emerson verði seldir í sumar.

Talið er að Roma reyni að fá Claudio Ranieri í stjórastólinn en hann verður væntanlega látinn taka poka sinn hjá Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.