Fotbolti.net
28.05.12 - 11:27
Elvar Geir Magnússon

Hoffenheim tók tilboði Swansea í Gylfa (Staðfest)

Hoffenheim tók tilboði Swansea í Gylfa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Swansea hefur staðfest það við fjölmiðla að tilboði félagsins í Gylfa Þór Sigurðsson, miðjumann Hoffenheim og íslenska landsliðsins, var tekið.

Tilboðið hljóðar upp á 6,8 milljónir punda og er því útlit fyrir að Gylfi sé að verða dýrasti leikmaðurinn í sögu Swansea.
Reiknað er með að Gylfi fari í læknisskoðun síðar í vikunni og gangi frá persónulegum samningi.

Gylfi var lánaður til Swansea seinni hlutann á nýliðnu tímabili og lék fantavel með liðinu. Hann tilkynnti svo forráðamönnum Hoffenheim að hann vildi ekki snúa aftur til þýska félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.