28.05.12 - 21:46
Ívan Guðjón Baldursson
Hierro hættur sem framkvæmdastjóri Malaga (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fernando Hierro, fyrrverandi leikmaður Spánar og Real Madrid, hætti sem framkvæmdastjóri Malaga eftir tæpt ár í starfi.
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum var Hierro ósammála stefnu eiganda félagsins, sem heitir Sheikh Abdallah Ben Nasser Al-Thani og kemur frá Kúveit.

,,Þetta er persónuleg ákvörðun og ég er búinn að láta eigendurna vita, ég hætti núna því mér finnst nægur tími fyrir félagið til að finna mann til að leysa mig af,\" sagði Hierro.
Hierro, sem á 89 landsleiki að baki, skrifaði undir fjögurra ára samning við Malaga í fyrra eftir að hafa hætt í stjórn spænska landsliðsins.
Malaga gekk vel á nýliðnu tímabili þar sem félagið endaði í fjórða sæti spænsku efstu deildarinnar og mun taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili í fyrsta skipti í sögunni.