Fotbolti.net
28.06.26 - 18:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sunderland hafnaði tilboði Chelsea - Xhaka ekki til sölu

Sunderland hafnaði tilboði Chelsea - Xhaka ekki til sölu
Canon

Mynd: EPA

Sunderland hefur hafnað tilboði Chelsea í svissneska miðjumanninn Granit Xhaka. The Athletic greinir frá.

Xabi Alonso, stjóri Chelsea, vill ólmur fá Xhaka til liðs við sig en þeir unnu saman hjá Leverkusen. Tilboðið hljóðar upp á 8 milljónir punda en Sunderland hefur tjáð Chelsea að Xhaka sé ekki til sölu fyrir neina upphæð.
Þótt Chelsea telji tilboðið sanngjarnt þá telur Sunderland það óásættanlegt og telur það vanvirða bæði 33 ára gamla svissneska landsliðsmanninn og félagið.

Xhaka gekk til liðs við Sunderland frá Leverkusen síðasta sumar fyrir rúmlega 17 milljónir punda. Hann hjálpaði liðinu að ná 7. sæti í úrvalsdeildinni og liðið spilar í Evrópukeppni á næsta tímabili í fyrsta sinn í 53 ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.