28.07.04 - 06:40
Magnús Már Einarsson
Kamerúni í markið hjá Espanyol (Staðfest)

Kameni í miðjunni með Espanyol treyju. Honum á hægri hönd er Miguel Angel Lotina nýr stjóri liðsins.


Kameni í miðjunni með Espanyol treyju. Honum á hægri hönd er Miguel Angel Lotina nýr stjóri liðsins.

Espanyol í La Liga hefur samið við kamerúnska markvörðinn Idriss Carlos Kameni. Hinn tvítugi Kameni hefur skrifað undir þriggja ára samning við Espanyol með möguleika á framlengingu um eitt ár. Hann hefur leikið með frönsku liðunum St Etienne og Le Havre vakti fyrst athygli á HM 2002 með Kamerún, þá var kappinn aðeins átján ára.
Kameni er ætlað að berjast um markvarðarstöðuna hjá Espanyol við Erwin Lemmens en bæði Wolves og Bolton í Englandi voru mjög nálægt því að ná í Kameni á síðastliðnu ári.
Kameni hefur strax verið líkt við landa sinn Thomas N'Kono sem að lék á sínum tíma með Espanyol og er nú hluti af starfsmönnum liðsins sem að er úr Barcelona borg.
Kameni hefur strax verið líkt við landa sinn Thomas N'Kono sem að lék á sínum tíma með Espanyol og er nú hluti af starfsmönnum liðsins sem að er úr Barcelona borg.
