Fotbolti.net
28.07.04 - 09:39

Hierro til Bolton (Staðfest)

Hierro

Hierro

Canon
Bolton hafa skrifað undir eins árs samning við gömlu hetjuna Hierro sem lék í 14 ár með Real Madrid. Hann var á síðata tímabili í Qatar þar sem hann spilaði með Al Rayyan.
Þessi 36 ára ungi varnarmaður telur sig greinilega enn eiga erindi í bestu leikmenn í heimi og spennandi verður að sjá hann í liði Bolton í sumar. Sam Allardyce stjóri Bolton hefur verið óhræddur við að semja við leikmenn sem eru á lokastigi ferils síns. Nægir þar að nefna leikmenn eins og Youri Djorkaeff, Jay Jay Okocha og Ivan Campo, fyrrum samherja Hierro hjá Real Madrid.

Hierro skrifaði undir samninginn núna rétt í þessu og við það tækifæri sagði Allardyce þetta: "Kaupin á Hierro er mikill ávinningur fyrir Bolton Wanderers. Hann er án efa eitt af stærstu nöfnunum í spænska boltanum.

Margir þekkja hann fyrst og fremst sem miðvörð en hann hefur spilað meirihluta ferilsins sem miðjumaður og núna höfum við þann möguleika að tefla honum fram í tveimur stöðum.

Ég hef unnið að þessu í nokkurn tíma og ég er hæst ánægður emð að hann vilji koma til Englands. Ég trúi því statt og staðfast að hann geti orðið stjarna í enska boltanum og ér er ánægður með að hann ákvað að koma til Bolton Wanderers."


Þarna gæti því verið arftaki Guðna Bergs en þess má geta að Guðni varð 39 ára gamall fyrir viku síðan og óskum við honum innilega til hamingju með það. Allardyce náði að lokka 36 ára gamlan Hierro á Reebok... reynir hann aftur við Guðna?
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.