Sævar Þór semur óvænt við Fylki! (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Í sameiginlegri yfirlýsingu frá félaginu og Sævari sem send var fjölmiðlum rétt í þessu segir orðrétt: ,,Stjórn mfl. Fylkis sem og Sævar Þór harma þá atburði sem hafa átt sér stað á undanförnum dögum. "
Fjögur lið auk Fylkis úr efstu deild höfðu sett sig í samband við Sævar og vildu fá hann til liðs við sig fyrir næsta sumar en auk þess höfðu tvö lið úr neðri deildum haft samband við hann. Samkvæmt okkar heimildum var annað þeirra lið Selfoss sem bauð honum starf framkvæmdastjóra félagsins auk þess að leika með félaginu.
Sævar er 29 ára gamall en hann lék sinn fyrsta leik með meistararaflokki árið 1994 en þá var hann í liði Selfoss sem mætti einmitt Fylki á Selfossvelli. Selfoss vann leikinn með sigurmarki Sævars. Á ferli sínum hefur Sævar einnig leikið með ÍR.
Hann skoraði fjögur mörk í sautján leikjum fyrir Fylki í efstu deild karla síðastliðið sumar.
Sjá einnig:
Sævar Þór og Þórhallur Dan hættir hjá Fylki
Fylkismenn sendu frá sér yfirlýsingu í dag
Valur og Fram hafa rætt við Þórhall Dan
