29.01.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Solano til Aston Villa. (STAÐFEST)

Solano skýtur að marki


Solano skýtur að marki

Aston Villa gekk í kvöld frá kaupum á Perúmanninum Nolberto Solano frá Newcastle United. Solano skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við félagið eftir að hafa komist að samkomulagi um kaup og kjör og undirgengist læknisskoðun. Leikmaðurinn hefur verið útí kuldanum hjá félaginu á tímabilinu og því vildi Bobby Robson leyfa honum að fara. Aston Villa borgaði 1.5 milljónir punda fyrir kappann en áður hafði 1. milljón punda boði verið neitað.
