Það fara fimm leikir í 16-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar á þessum miðvikudegi. Tveir leikir eru klukkan 18:00 og þrír leikir eru klukkan 20:00.
Cultural Leonesa, sem sló út Atletico Madrid í síðustu umferð, mætir Valencia. Nær Leonesa að koma aftur á óvart.
Real Sociedad og Osasuna eigast við í eina úrvalsdeildarslag kvöldsins. Þegar þessi lið mættust fyrir áramót varð úr sjö marka leikur sem endaði með 4-3 sigri Sociedad.
Real Madrid verður þá í eldlínunni í kvöld. Topplið spænsku úrvalsdeildarinnar á leik gegn Real Zaragosa á útivelli. Zaragosa er að berjast á toppnum í B-deildinni.
Leikir dagsins:
18:00 Cultura Leonesa - Valencia
18:00 Rayo Vallecano - Villarreal
20:00 Badajoz - Granada
20:00 Real Zaragoza - Real Madrid
20:00 Real Sociedad - Osasuna
Athugasemdir