Fotbolti.net
29.03.04 - 00:00

Kapo til Juventus (Staðfest)

Kapo til Juventus (Staðfest)
Canon
Olivier Kapo sóknarmaður Auxerre í Frakklandi segir að hann hafi komist að samkomulagi við Juventus um að ganga til liðs við þá í sumar. Þessi franski landsliðsmaður verður samningslaus í sumar og hefur verið orðaður við fjöldann allan af liðum undanfarið. Meðal liða sem vildu hann voru Valencia, Bolton, Fulham, Deportivo La Coruna og Paris St. Germain.
"Þeir höfðu fyrst samband fyrir um það bil mánuði síðan" sagði Kapo. "Ég var í Tórínó fyrir leik Juventus og Deportivo í Meistaradeildinni. Í fyrstu vildi ég ekki tala um neitt en þetta gerðist allt svo hratt. Deportivo gerði tilboð í mig um eftirmiðdaginn en ég var búinn að ganga frá samningnum um morguninn við Juventus.

Þú getur ekki neitað Juventus. Ég get aðeins bætt mig með svona góðum leikmönnum eins og Del Piero og ég hef alltaf sagt að það væri fótboltahliðin sem réði mestu um ákvörðun mína um nýtt lið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.