Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs á Akureyri, segist spenntur fyrir því að mæta FH í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins um næstu helgi.
Þórsarar unnu KA eftir vítakeppni í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins um helgina.
Þeir snúa aftur í Bestu deildina ellefu árum eftir að hafa spilað síðast í efstu deild.
Á dögunum fengu Þórsarar Val í heimsókn í Lengjubikarnum en Hermann Hreiðarsson mætti með ungt og óreynt lið í þann leik. Þar lýsti Sigurður því að þetta hafi verið eins og að vera mættur aftur á Pollamótið.
Ákvörðun Hermanns var gagnrýnd og var rætt um það í Þungavigtinni að þarna hafi Valur ekki viljað sýna þeim spilin þar sem liðin munu eigast við í 1. umferð Bestu deildarinnar þann 12. apríl.
Sigurður er því mjög spenntur að fá alvöru lið þegar FH mætir í heimsókn í Bogann í Mjólkurbikarnum um helgina, en leikurinn hefst klukkan 14:00 á laugardag og verður í beinni útsendingu á RÚV.
„Bara geggjað. Við erum búnir að kvarta yfir því að fá ekki nógu góða leiki hérna og að fá efstu deildar lið hingað er bara frábært og geðveikt test fyrir mót.“
„Ég hefði viljað fá aðeins betri frammistöðu í dag (föstudag), en einu sinni enn þá bættum við það sem við ætluðum að bæta og ég held að við náum hrikalega góðri frammistöðu næstu helgi,“ sagði Sigurður við Fótbolta.net á föstudag.
Athugasemdir



