29.05.12 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Emre til Atletico Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hefur fengið miðjumanninn Emre Belozoglu í sínar raðir frá Fenerbahce.
Emre, sem er 31 árs gamall, skrifaði undir tveggja ára samning við Atletico Madrid en hann kemur frítt til félagsins.
,,Reynsla hans ætti að styrkja lið okkar sem er eitt það yngsta í deildinni,\" sagði Jose Luis Caminero yfirmaður íþróttamála hjá Atletico Madrid.
Emre á 80 landsleiki að baki en hann vildi yfirgefa tyrknesku deildina eftir að hafa verið með kynþáttafordóma í garð Didier Zokora í leik á dögunum.