Fotbolti.net
29.06.04 - 13:52

Geolgau hættir hjá Fram (Staðfest)

Ion Geolgau á blaðamannafundinum þegar hann tók við liðinu

Ion Geolgau á blaðamannafundinum þegar hann tók við liðinu

Canon
Ion Geolgau er hættur störfum hjá Fram en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins Fram.is. Hann taldi sig ekki vera að ná þeim árangri sem að var stefnt og taldi eðlilegast að skipt yrði um þjálfara til að reyna að bjarga félaginu úr þeim vandræðum sem félagið er nú í.
Hann óskaði þvi eftir að fá að hætta og stjórnin varð að ósk hans. Hann þakkaði félaginu fyrir samstarfið og hefur Fram þegar hafið leit að eftirmanni hans.

Hugsanlega mun Jörundur Áki Sveinsson taka við liðinu út tímabilið en það kemur allt í ljós. Hann hætti á dögunum sem þjálfari 2 flokks liðsins til að einbeita sér að aðstoð við Geolgau. Það var Þorvaldur Makan Sigurbjörnsson sem tók við 2 flokknum.

Geolgau tók við af Steinari Guðgeirssyni sem þjálfaði liðið síðasta sumar. Hann tók við eftir að Kristinn R. Jónsson var rekinn og ætlaði sér bara að þjálfa liðið út sumarið. Það gerði hann og hélt liðinu uppi. Framarar mundu bjóða hann velkominn heim í Safamýrina en málið mun skýrast fljótlega.

Fram situr sem stendur í næst neðsta sæti deildarinnr með 5 stig eftir 8 leiki. Víkingar eru á botninum með 4 stig en þeir eiga leik til góða uppi á Skipaskaga í kvöld gegn ÍA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.