Fotbolti.net
29.07.04 - 10:28

Van Basten ráðinn til Hollands (Staðfest)

Van Basten ráðinn til Hollands (Staðfest)
Canon
Gamla kempan Marco Van Basten hefur verið tilkynntu sem nýr landsliðsþjálfari Hollendinga í knattspyrnu. Basten var á sínum tíma einn af bestu leikmönnum í heimi en þrálát meiðsli settu strik í reikninginn og hann neyddist til að hætta knattspyrnuiðkun árið 1995.
Dick Advocaat hætti sem þjálfari liðsins eftir Evrópumótið í sumar en Basten og aðstoðarmaður hans John van't Schip verða kynntir á blaðamannafundi í næstu viku.

Van Basten var þrisvar sinnum valinn Besti leikmaður Evrópu en hann lék með Ajax og AC Milan. Hann lék sinn fyrsta landsleik gegn okkur íslendingum árið 1983 og skoraði 24 mörk í 59 landsleikjum.

Samningur hans er til fjögurra ára eða framyfir Evrópumótið 2008.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.