Fotbolti.net
29.07.04 - 10:37

Greening til WBA (Staðfest)

Maccarone og Greening

Maccarone og Greening

Canon
Miðjumaður Midlesbrough, Jonathan Greening hefur skrifað undir þriggja ára samning við WBA sem komst upp í Úrvalsdeildina í vor. Boro samþykktu mörgum til mikillar furðu boð upp á 1,25 milljónir punda fyrir þennan 25 ára gamla miðvallarleikmann sem var valinn leikmaður ársins hjá félaginu fyrir tímabilið 2002-2003.
Boro fengu Greening frá Manchester United árið 2001 og hefur hann verið kallaður til æfinga hjá enska landsliðinu. En eitthvað hefur hann færst aftur í goggunarröðinni með þá Gaizka Mendieta, Bolo Zenden og Doriva á miðjunni.

En Boro vilja fá Zenden til að framlengja lánið sitt frá Chelsea og líklegt þykir að hann geri það. Þá hefur Geremi verið orðaður við sölu aftur til Boro en hann er að berjast við ansi margar stórstjörnur um sæti í liði Jose Mourinho.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.