29.07.04 - 10:45
Edmilson til Barcelona (Staðfest)

Verða sterkir á komandi tímabili

Verða sterkir á komandi tímabili

Edmilson er orðinn leikmaður Barcelona eftir að Lyon og Katalónarnir sömdu um kaupverðið á leikmanninum. Hann var búinn að semja um persónulega samninginn og því aðeins formsatriði að klára málið.
Edmilson sem er 28 ára var í brasilíska landsliðinu sem tryggði sér Heimsmeistaratitilinn 2002 og hefur verið lykilmaður í liði Lyon sem náði frábærum árangri síðasta tímabil, varð franskur meistari og komst í 8 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.
Edmilson eru sjöttu kaup Barcelona í sumar en áður höfðu þeir keypt Juliano Belletti, Ludovic Guily, Henrik Larsson, Deco og Silvinho.
Auk þess gengu þeir endanlega frá kaupunum á Giovanni Van Bronckhurst sem hefur verið í láni frá þeim frá Arsenal. Varnarmaðurinn verður sjötti brasilíumaðurinn á Nou Camp en fyrir eru Belletti, Silvinho, Deco (sem fæddur er í Brasilíu), Ronaldinho og Thiago Motta.