Fotbolti.net
29.07.04 - 13:02
Elvar Geir Magnússon

Nicky Butt til Newcastle (Staðfest)

Nicky Butt.

Nicky Butt.

Canon
Búið er að ganga frá öllu varðandi sölu miðjumannsins Nicky Butt frá Manchester United til Newcastle. Þessi 29 ára leikmaður var seldur fyrir um 2,5 milljónir punda en hann hefur allan sinn feril spilað með Manchester liðinu. Þar með lýkur 13 ára veru hans á Old Trafford en hann skrifaði undir samning til 4 ára við Newcastle.
Butt var með Manchester United í æfingaferð í Bandaríkjunum en flaug heim til að gangast undir læknisskoðun hjá Newcastle sem hann stóðst. Newcastle hefur í nokkurn tíma verið á eftir Butt en hann er hugsaður til að fylla skarðið sem Gary Speed skilur eftir sig því hann er farinn til Bolton.

Butt hefur reglulega spilað með enska landsliðinu og vann ensku deildina sex sinnum með Man Utd. Hann lék 387 leiki fyrir liðið, sá síðasti var bikarúrslitaleikur gegn Millwall þar sem hann kom inn sem varamaður. United vann þann leik en Butt varð tvisvar bikarmeistari í tíð hans hjá félaginu.

Hann spilaði stórt hlutverk 1999 þegar Manchester United vann Meistaradeild Evrópu en í úrslitaleiknum gegn Bayern Munchen spilaði hann á miðri miðjunni í fjarveru Paul Scholes og Roy Keane. Butt átti sannkallaðan stórleik í þeim leik. En vegna meiðsla meðal annars var hann búinn að missa fast sæti í liðinu og fannst tími til að fara annað.

Birmingham og Middlesbrough höfðu einnig áhuga á að fá Nicky Butt en Newcastle vann kapphlaupið nokkuð örugglega.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.