Fotbolti.net
29.07.04 - 16:43
Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl til Leiceseter (Staðfest)

Jóhannes Karl til Leiceseter (Staðfest)
Canon
Jóhannes Karl Guðjónsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Leicester City og mun koma beint í leikmannahópinnn sem fer til Spánar um helgina og mætir Real Mallorca og fleiri liðum. Jóhannes sem er 24 ára gamall hafnaði beiðni Leeds United um að koma til reynslu æfinga hjá liðinu og sagðist ekki hafa tíma í það. Hann lék með Wolves á síðustu leiktíð á láni frá Real Betis á Spáni.
Hann fékk sig svo lausan undan samningi við Betis á dögunum og hefur verið að leita sér að félagi eftir að ljóst varð að Wolves vildi ekki fá hann aftur.

Micky Adams stjóri Leicester var ánægður með samninginn og sagði: ,,Jói er sterkur miðvallarleikmaður sem við vonum að muni vinna boltann og spila honum áfram á miðjunni" sagði hann á vefsíðu BBC.

Jóhannes er annar Íslendingurinn til að spila með Leicester en Arnar Gunnlaugsson gerði þar garðinn frægan fyrir nokkrum árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.