29.07.26 - 21:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deild kvenna: Fram með sterkan sigur á Val

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram 4 - 1 Valur
1-0 Sara Svanhildur Jóhannsdóttir ('33 )
1-1 Margrét Brynja Kristinsdóttir ('49 )
2-1 Alda Ólafsdóttir ('52 )
3-1 Katrín S. Vilhjálmsdóttir ('54 )
4-1 Taylor Marie Hamlett ('63 )
Lestu um leikinn
1-0 Sara Svanhildur Jóhannsdóttir ('33 )
1-1 Margrét Brynja Kristinsdóttir ('49 )
2-1 Alda Ólafsdóttir ('52 )
3-1 Katrín S. Vilhjálmsdóttir ('54 )
4-1 Taylor Marie Hamlett ('63 )
Lestu um leikinn
Fram vann frábæran sigur á Val í Bestu deild kvenna í kvöld. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir sá til þess að Fram var með forystuna í hálfleik.
Margrét Brynja Kristinsdóttir jafnaði metin snemma í seinni hálfleik.
Framarar voru ekki lengi að svara því þegar Alda Ólafsdóttir kom þeim aftur yfir. Katrín S. Vilhjálmsdóttir skoraði síðan þriðja markið strax í kjölfarið.
Það var síðan Taylor Marie Hamlett sem innsiglaði sigur Fram. Fram er í 6. sæti með 16 stig en Valur er á botninum með tíu stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | FH | 13 | +25 | 30 |
| 2 | Breiðablik | 13 | +24 | 30 |
| 3 | Stjarnan | 13 | +5 | 22 |
| 4 | ÍBV | 13 | -1 | 21 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 13 | -7 | 16 |
| 6 | Þróttur R. | 13 | -5 | 14 |
| 7 | Fram | 12 | -12 | 13 |
| 8 | Þór/KA | 13 | -7 | 12 |
| 9 | Víkingur R. | 13 | -12 | 11 |
| 10 | Valur | 12 | -10 | 10 |