Fotbolti.net
29.07.26 - 20:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sölvi Geir: Sýndum að við eigum heima á þessu stigi keppninnar

Auglýsing
Sölvi Geir: Sýndum að við eigum heima á þessu stigi keppninnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur er úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar eftir tap gegn ísraelska liðinu Hapoel Be'er Sheva í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Hapoel Be'er Sheva 2 - 0 Víkingur R.
„Það er alltaf sárt að tapa svona einvígum eins og í dag, að hafa lagt svona mikla vinnu í verkefnið, hlaupið svona mikið og komið okkur í góðar stöður til að fara áfram í einvíginu þá er þetta hrikalega svekkjandi," sagði Sölvi Geir.

Víkingur fékk vítaspyrnu í blálokin og mark þar hefði orðið til þess að leikurinn yrði framlengdur. Dómurinn var hins vegar dregin til baka í VAR.

„Hann gefur okkur ekki útskýringu. Eftir að hafa horft á þetta vill hann örugglega meina að Sveinn Margeir brýtur á markmanninum. Annars sé ég ekki hvað hann ætti að vera gera. Mér finnst hann vera búinn að kýla boltann í burtu áður en Sveinn Margeir fer í hann og hefur ekki áhrif á atvikið þegar Stígur er tekinn niður," sagði Sölvi.

Sölvi Geir var svekktur með færanýtinguna í einvíginu.

„Við vorum ekki nógu klínískir að nýta stöðurnar. Þegar þú ert kominn á þetta stig í þessari keppni verðum við að vera betri að nýta þau tækifæri sem við fáum. Við fáum fullt af færum í fyrri leiknum til að koma okkur í ennþá betri stöðu. Ég er mjög sáttur með fyrri hálfleikinn að mörgu leyti, við vörðumst vel og komum okkur að sama skapi í góðar stöður," sagði Sölvi Geir.

„Ég er virkilega stoltur af frammistöðu strákana. Þetta er virkilega öflugt lið sem við vorum að spila við. Mér finnst við sýna að við eigum heima á þessu stigi keppninnar. Margt til að vera sáttur við og margt til að læra til að vera ennþá sterkari í framtíðinni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.