Fotbolti.net
29.07.26 - 20:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deild kvenna: Tvö víti fóru forgörðum í Kópavogi - Dramatík í Eyjum

Ólöf Sigríður

Ólöf Sigríður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik fékk Þór/KA í heimsókn í Kópavog í kvöld. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir kom Breiðabliki yfir strax í upphafi leiks eftir sendingu frá Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur.

Breiðablik fékk síðan vítaspyrnu en Agla María Albertsdóttir skaut framhjá. Þór/KA fékk vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks en Margrét Árnadóttir skaut í stöngina.
Ólöf Sigríður innsiglaði sigur Breiðabliks eftir frábært einstaklingsframtak. Birgitta Rún Finnbogadóttir fékk frábært færi til að minnka muninn en skotið slakt. Nær komust þær ekki og Breiðablik fagnaði sigri.

Það var dramatík í Eyjum þar sem FH var í heimsókn. Hrönn Haraldsdóttir kom FH yfir og Ingibjörg Magnúsdóttir bætti öðru markinu við eftir glæsilegt einstaklingsframtak.

ÍBV minnkaði muninn þegar Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Það var dramatík í lokin þar sem Allison Grace Lowrey jafnaði metin í uppbótatíma og bjargaði stigi fyrir ÍBV.

FH er áfram á toppnum með 30 stig, jafn mörg stig og Breiðablik. ÍBV er í 4. sæti með 21 stig en Þór/KA er í 8. sæti með 12 stig.

Breiðablik 2 - 0 Þór/KA
1-0 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('3 )
1-0 Agla María Albertsdóttir ('20 , misnotað víti)
1-0 Margrét Árnadóttir ('45 , misnotað víti)
2-0 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('53 )
Lestu um leikinn

ÍBV 2 - 2 FH
0-1 Hrönn Haraldsdóttir ('33 )
0-2 Ingibjörg Magnúsdóttir ('45 )
1-2 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('59 , sjálfsmark)
2-2 Allison Grace Lowrey ('93 )
Lestu um leikinn
Allison Grace Lowrey

Allison Grace Lowrey

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH13+2530
2Breiðablik13+2430
3Stjarnan13+522
4ÍBV13-121
5Grindavík/Njarðvík13-716
6Þróttur R.13-514
7Fram12-1213
8Þór/KA13-712
9Víkingur R.13-1211
10Valur12-1010
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.