29.07.26 - 18:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HK hafnaði tveimur tilboðum frá Njarðvík

Þorsteinn Aron Antonsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorsteinn Aron Antonsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK hefur hafnað tveimur tilboðum frá Njarðvík í leikmenn liðsins á síðustu dögum samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Um er að ræða varnarmanninn Þorstein Aron Antonsson og sóknarmanninn Bjarka Örn Brynjarsson.
Um er að ræða varnarmanninn Þorstein Aron Antonsson og sóknarmanninn Bjarka Örn Brynjarsson.
Þorsteinn Aron (2004) er uppalinn Selfyssingur en hann gekk í raðir HK frá Val á láni árið 2024. Hann gekk svo alfarið til liðs við félagið í fyrra. Þorsteinn var á mála hjá Fulham frá 2020-2023.
Bjarki Örn (2010) er uppalinn hjá HK. Hann hefur spilað 11 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað fjögur mörk. Hann skrifaði undir nýjan samning við félagið fyrir áramót og var á reynslu hjá enska félaginu Nottingham Forest.
Félagaskiptaglugginn í Lengjudeildinni lokar í kvöld.