Fotbolti.net
29.07.26 - 21:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Rúnar Ingi hetja Grindvíkinga

Lengjudeildin: Rúnar Ingi hetja Grindvíkinga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Grindavík 1 - 0 Leiknir R.
1-0 Rúnar Ingi Eysteinsson ('68 )
Lestu um leikinn
Grindavík fékk Leikni í heimsókn í Lengjudeildinni í kvöld. Leiknismenn byrjuðu leikinn vel en Hjörvar Daði Arnarsson var í stuði í marki Grindavíkur og varði nokkrum sinnum vel.

Rúnar Ingi Eysteinsson var nálægt því að koma Grindvíkingum yfir undir lok fyrri hálfleiks en Ólafur Íshólm Ólafsson varði frábærlega frá honum. Rafael Victor átti síðan skalla strax í kjölfarið en Ólafur aftur vel á verði.

Rúnar Ingi kom síðan Grindvíkingum yfir eftir undirbúning Gunnleifs Orra Gunnleifssonar.

Fleiri mörk urðu ekki skoruð og sterkur sigur Grindavíkur staðreynd. Leiknir er í 8. sæti með 19 stig, tveimur stigum á undan Grindavík sem er í sætinu fyrir neðan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Fylkir16+1233
2Afturelding14+2231
3Þróttur R.15+1730
4HK16+928
5Njarðvík16+326
6Grótta14+122
7Vestri15-521
8Leiknir R.15-419
9ÍR16-916
10Grindavík15-514
11Völsungur16-1711
12Ægir16-248
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.