29.07.26 - 20:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Aron Þrándar: Svekkjandi að fagna vítinu og fá það svo í grillið
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við Aron Elís Þrándarson, leikmann Víkings, eftir tap liðsins gegn Hapoel Be'er Sheva í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
„Ég er gríðarlega svekktur. Mér fannst við geta refsað þeim aðeins betur í fyrri hálfleik. Svo var þetta erfiður seinni hálfleikur og hitinn var að gera okkur erfitt fyrir og það vantaði orkustigið," sagði Aron Elís.
Víkingur fékk vítaspyrnu í blálokin en VAR dæmdi Svein Margeir Hauksson brotlegan og dró dóminn til baka.
„Þetta er voða tæpt en ég held að markmaðurinn sé aðeins á undan í boltann þá dæmir hann brot á Svenna. Þetta var gríðarlega svekkjandi að fagna vítinu og fá það svo í grillið að þetta sé ekki víti."
Aron Elís var ánægður með fyrri hálfleikinn en þetta var erfitt í seinni.
„Þeir voru ekki að skapa neitt í fyrri hálfleik og við fáum góð upphlaup og hefðum getað gert betur. Við vorum ánægðir með fyrri hálfleikinn þó við hefðum viljað spila aðeins betur. Þeir komu með smá skriðþunga í seinni hálfleik, ná að skora 1-0 og það kveikti í þeim."