29.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
ÍA fær markavél frá Kanada (Staðfest)

Mynd: ÍA

Mynd: ÍA

ÍA var að ganga frá samkomulagi við Alliyah Rowe sem er mikill markaskorari frá Kanada.
Ally er fædd árið 2001 og skoraði tvennu í 3-2 sigri ÍA gegn KR í síðustu viku.
Hún skoraði 24 mörk í 16 leikjum með Simcoe County Rovers FC í heimalandinu á síðustu leiktíð og raðaði svo inn mörkunum með FC Berlin í innanhússfótbolta. Þar áður var hún lykilmaður í háskólaliði Cape Breton Capers.
„Velkomin til okkar Ally og hlökkum til að fylgjast með þér í gulu næsta árið," segir meðal annars í tilkynningu frá ÍA.