Fotbolti.net
29.07.26 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Leikmaðurinn viti upp á hár um hverja einustu evru

Bjarki Már Ólafsson.

Bjarki Már Ólafsson.

Canon

Mynd: Stirr Associates

Bjarki Már Ólafsson hefur undanfarin ár starfað sem umboðsmaður hjá Stirr Associates í Belgíu. Í starfi sínu leggur Bjarki mikla áherslu á heiðarleika og upplýsingagjöf til leikmanna.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 27. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, en boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
„Þegar ég fór að kynna mér hlutina svolítið vel þá sá ég hvað það er ótrúlega margt sem má gera miklu betur í starfi umboðsmanns," sagði Bjarki við Fótbolta.net.

„Til að mynda þegar ég fór að stúdera hlutina aðeins þá eru margir leikmenn sem átta sig ekki á tekjumódeli umboðsmanna; hvernig umboðsmenn afla sér tekna. Það eru margir leikmenn sem skilja engan veginn hvernig umboðsmenn nálgast félagaskipti og hvaða hugsjónir búa þar að baki, hver er þeirra ávinningur í öllu ferlinu?"

„Ég áttaði mig á því að mjög margir leikmenn og margar fjölskyldur eru fullkomlega óupplýst um ferlið og umboðsmenn hafa einhvern veginn viljað hafa grátt svæði þar sem þeir geta unnið án þess að leikmaðurinn eða fjölskyldurnar séu upplýstar. Maður spyr sig af hverju þetta sé svona og að þetta viðgangist. Fyrir marga af þessum umboðsmönnum snýst allt um þetta gráa svæði því þar afla þeir tekna og ná að græða mest á leikmönnunum sínum."

Bjarki vill breyta þessu.

„Þegar maður vissi þetta fór ég að velta fyrir mér af hverju það væri ekki hægt að vinna hlutina öðruvísi. Við vinnum þannig að leikmaðurinn er í fullri stjórn, er fullupplýstur og veit alltaf hvað er í gangi. Hann veit upp á hár hverja einustu evru sem ég eða við erum að taka inn í hverjum díl. Hann fær reglulegt yfirlit yfir alla vinnu sem við sinnum og hvaða félög við erum að ræða við. Hann fær svo ítarlegar og faglegar upplýsingar um hvern klúbb sem hefur áhuga og getur þá sjálfur tekið upplýsta ákvörðun með fullri sannfæringu. Leikmaðurinn ræður."

„Það er aldrei þannig að við erum að vinna á bak við leikmanninn til að fá sem mest út úr því sem við erum að gera. Ég hef séð umboðsmenn vinna þannig að leikmaðurinn sé sem minnst upplýstur til að fá sem mest fyrir sjálfan sig eða að gæta eigin hagsmuna en ég trúi því að bransinn muni breytast til hins betra með heiðarlegri starfsháttum."

„Þegar ég lærði og sá þessi vinnubrögð margra langaði mig að koma inn og nálgast hlutina öðruvísi. Ég vil bjóða leikmönnunum upp á þjónustu sem setur þá í stjórn því þetta snýst allt um þá, þetta er ferillinn þeirra og þeir þurfa að vera með fólk í kringum sig sem sér til þess að allt sé upp á borðum ásamt því að leiðbeina þeim."

„Að mínu mati hefur vantað þetta í fótboltann í gegnum árin. Umboðsmenn hafa nýtt sér fávisku og upplýsingaskort til síns eigin hagnaðar,"
segir Bjarki.

Á bak við tjöldin hjá nýrri kynslóð íslenskra umboðsmanna
TENGT EFNI

Á bak við tjöldin hjá nýrri kynslóð íslenskra umboðsmanna

Leikmaðurinn viti upp á hár um hverja einustu evru
Canon

Mynd: Úr einkasafni

Leikmaðurinn viti upp á hár um hverja einustu evru
Canon

Mynd: Úr einkasafni

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.