Fotbolti.net
29.07.26 - 15:59
Kári Snorrason
Ítalski boltinn

Juventus hefur betur gegn Chelsea í baráttunni um Alajbegovic

Á leið til Juventus.

Á leið til Juventus.

Canon

Mynd: EPA

Hinn bráðefnilegi Bosníumaður Kerim Alajbegovic virðist vera á leið til Juventus frá Bayer Leverkusen. Juventus hefur þar með betur gegn Chelsea í baráttunni en Lundúnaliðið lagði mikið kapp á að fá hann.

Chelsea er sagt hafa verið komið með samkomulag við leikmanninn en vildi ekki borga uppsett verð Leverkusen. Juventus er þó komið með samkomulag við félagið og greiðir 33 milljónir evra auk bónusgreiðslna fyrir leikmanninn.
Maður dagsins á HM - Trúrækni táningurinn sýndi töfra
TENGT EFNI

Maður dagsins á HM - Trúrækni táningurinn sýndi töfra

Þessi 18 ára gamli kantmaður er mikið efni. Þrátt fyrir ungan aldur er hann lykilmaður í landsliði Bosníu og Hersegóvínu. Eflaust muna einhverjir eftir glæsilegu marki Alajbegovic á HM fyrr í sumar sem hann skoraði gegn Katar í 3-1 sigri Bosníumanna.

Alajbegovic hefur fengið viðurnefnið trúrækni táningurinn en hann er múslimi og er mjög trúrækinn. Hann hefur heimsótt mosku í Sarajevó, höfuðborg Bosníu og Hersegóvínu, þegar hann hefur verið í landsliðsverkefnum í borginni.

Trúrækni táningurinn.

Trúrækni táningurinn.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.