Fotbolti.net
29.07.26 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Óþekktaranginn Arokodare lánaður til Ajax (Staðfest)

Óþekktaranginn Arokodare lánaður til Ajax (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Tolu Arokodare sóknarmaður Wolves er kominn til Ajax á lánssamningi. Hollenska félagið borgar laun hans að fullu ásamt því að greiða eina milljón punda í leigukostnað.

Arokodare hefur verið slakur hjá Úlfunum síðan hann var keyptur frá Genk fyrir 23,4 milljónir punda. Liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og vill selja Arokodare sem fór ekki með liðinu í æfingaferð til Portúgals nýlega.
Æfingu aflýst og aukin öryggisgæsla hjá Úlfunum
TENGT EFNI

Æfingu aflýst og aukin öryggisgæsla hjá Úlfunum

Í síðustu viku bárust fréttir af því að hætt hafi verið við æfingu hjá Wolves því Arokodare neitaði að yfirgefa æfingasvæðið. Arokodare lenti líka í agavandamálum fyrr á árinu þegar hann lenti í rimmu við liðsfélaga sinn Mateus Mane.

Ajax hafnaði í fimmta sæti hollensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og tekur þátt í Sambandsdeild Evrópu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.