29.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ranieri tekur við starfinu sem Maldini sagði upp

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska fótboltasambandið er búið að ráða inn Claudio Ranieri sem tæknilegan stjóra landsliðsins, hann tekur við starfinu sem Paolo Maldini sagði upp á dögunum.

TENGT EFNI
Leonardo og Maldini hætta vegna ákvörðunar forsetans
Forseti ítalska fótboltasambandsins treysti ekki að ráða inn Andrea Pirlo sem landsliðsþjálfara útaf tengslum hans við rússneskt veðmálafyrirtæki, sem varð til þess að Maldini og Leonardo hættu í störfum sínum hjá landsliðinu.
Roberto Mancini var í kjölfarið ráðinn sem landsliðsþjálfari og er Ranieri tekinn við sem tæknilegur stjóri.
Ranieri, sem verður 75 ára í október, býr yfir gríðarlegri reynslu eftir skemmtilegan feril sem þjálfari. Hann starfaði síðast sem þjálfari AS Roma tímabilið 2024-25 og vann það sér helst til frægðar að stýra Leicester City til ótrúlega ólíklegs úrvalsdeildartitils tímabilið 2015-16.

Fíaskói Ítala lokið - Mancini snýr aftur (Staðfest)

Mynd: EPA