29.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Arnar nýr yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu


Mynd: Grótta


Mynd: Grótta
Arnar Þór Axelsson er tekinn við sem yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu eftir að Magnús Örn Helgason lét af störfum í byrjun sumars.
Arnar hefur starfað sem þjálfari hjá Gróttu í rúman áratug. Hann hefur þjálfað yngri flokkana auk þess að starfa með meistaraflokkum félagsins. Undanfarin ár hefur hann verið aðalþjálfari 2. flokks karla sem hefur náð eftirtektarverðum árangri undir hans stjórn og komst í fyrsta sinn í sögu félagsins í bikarúrslit.
„Í störfum sínum hefur Arnar sýnt fagmennsku, metnað og leiðtogahæfileika. Við í stjórn Knattspyrnudeildar hlökkum til samstarfsins," segir meðal annars í tilkynningu frá Gróttu.
„Í störfum sínum hefur Arnar sýnt fagmennsku, metnað og leiðtogahæfileika. Við í stjórn Knattspyrnudeildar hlökkum til samstarfsins," segir meðal annars í tilkynningu frá Gróttu.
