29.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Olise og Díaz eru ekki til sölu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jan-Christian Dreesen, framkvæmdastjóri FC Bayern, segir ekki möguleika á því að Michael Olise og Luis Díaz verði seldir í sumar.
Díaz og Olise voru stórkostlegir á síðustu leiktíð með Bayern og eru tveir af bestu kantmönnum heims í dag.
„Auðvitað verður Michael Olise áfram. Við erum ekki í samningsviðræðum við hann útaf því að hann er með þrjú ár eftir af samningi," sagði Dreesen áður en hann snéri sér að Díaz.
„Það væri heimskulegt af okkur að selja Díaz. Við erum með stórkostlegt lið og við getum ekki beðið eftir að raða inn mörkum á nýju tímabili."