29.08.03 - 00:00
Haraldur Hreinsson
Barry Ferguson til Blackburn (staðfest)




Eftir tvær árangurslausar tilraunir hefur enska úrvalsdeildarliðið, Blackburn Rovers, náð að festa kaup á skoska miðvallarleikmanninum Barry Ferguson. Ferguson skrifaði undir samning til fjögurra ára og greiddu Blackburn 7,5 milljónir punda fyrir hann.
Forráðamenn Blackburn eru í skýjunum yfir þessum kaupum og sagði Graeme Souness, knattspyrnustjóri Blackburn sem eitt sinn lék með Glasgow Rangers, að þessi 26 ára gamli leikmaður geti orðið einn besti miðjumaður á Englandi.
