Fotbolti.net
29.08.04 - 13:13

Chelsea kaupa Morais (Staðfest)

Enn að kaupa

Enn að kaupa

Canon
Chelsea hafa fest kaup á portúgalska leikmanninum Nonu Morais. Hann lék með annarar deildar liðinu Penafiel í heimalandi sínu á síðasta tímabili. Morais er tvítugur að aldri og getur spilað í vörninni eða á miðjunni.
Hann fór til reynslu hjá Chelsea og skrifaði í kjölfarið undir þriggja ára samning á Stamford Bridge.

Hann bætist í hóp þeirra Tiago, Ricardo Carvalho, Paulo Ferreira auk stjórans Jose Mourinho sem komið hafa til Chelsea frá Portúgal í sumar. Mourinho var hrifinn af hæfileikum hans á reynslutímanum og dreif sig í að kaupa hann áður en félagaskiptaglugginn lokar á þriðjudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.