29.09.04 - 22:35
Magnús Már Einarsson
Palace fær grískan landsliðsmann (Staðfest)




Crystal Palace hefur fengið miðjumanninn Vassilios Lakis frítt. Hinn 28 ára gamli Lakis hefur verið án liðs síðan að hann fór frá AEK Aþenu í sumar eftir að hafa ekki fengið greidd laun.
Lakis sem að leikur hægra megin á miðjunni á 32 landsleiki að baki fyrir Grikki og hefur skorað í þeim þrjú mörk en hann lék tvo leiki í sigri liðsins á EM.
Hann mun án efa styrkja Crystal Palace sem að er í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar með aðeins tvö stig af 21 mögulegu.
Hann mun án efa styrkja Crystal Palace sem að er í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar með aðeins tvö stig af 21 mögulegu.
