Víðir og KFG mætast í dag, föstudag, í úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst hann kl. 19:15. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi neðrideildabikarkeppni fer fram.
Tryggðu þér miða á tix.is
Sigurður Ingvarsson og Lárus Guðmundsson verða heiðursgestir leiksins.
Tryggðu þér miða á tix.is
Sigurður Ingvarsson og Lárus Guðmundsson verða heiðursgestir leiksins.
Lestu um leikinn: Víðir 2 - 1 KFG
Heiðursgestur Víðis: Sigurður Ingvarsson
Sigurður Ingvarsson, af mörgum kallaður „Guðfaðir knattspyrnunnar í Garði“ er maður sem er með sannkallað Víðishjarta, sem ennþá mætir á völlinn og lætur í sér heyra.
Sigurður hefur víða komið að uppbyggingu hjá Víðisfélaginu, sem leikmaður, þjálfari og formaður félagsins. Hann var lengi þjálfari yngri flokka félagsins sem seinna urðu uppistaðan í liðinu sem kom Víði í efstu deild.
Sigurður hefur gefið mikið af sér án þess að gera mikið úr því, en þannig maður er Siggi, sem er virtur í samfélaginu fyrir störf sín.
Sigurður hefur verið sæmdur Silfur- og Gullmerki Víðis og þá er hann heiðursfélagi þess. Sigurður var sæmdur Gullmerki KSÍ 2006. Árið 2020 var honum veitt viðurkenning fyrir óeigingjarnt starf að íþrótta og æskulýðsmálum í Suðurnesjabæ.
Heiðursgestur KFG: Lárus Guðmundsson
Lárus Guðmundsson er stofnandi KFG, hann var lengi vel formaður og þjálfari félagsins og nafn hans verður alltaf samofið félaginu. Lárus vildi skapa fleiri tækifæri fyrir knattspyrnumenn í Garðabæ og þurfti Lalli að hafa nokkuð fyrir því að fá æfingatíma, búnað og fjárhagslegan stuðning frá bæði bænum og Stjörnunni. Hann barðist fyrir félagið, enda alltaf haft óbilandi trú á verkefninu og líklega sá hann það seint fyrir sér að liðið kæmist í bikarúrslit á Laugardalsvelli. Lárus Guðmundsson er heiðursgestur KFG í kvöld.
29.09.2023 08:10
Upplýsingapakki fyrir úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins
Athugasemdir