Fotbolti.net
29.10.04 - 10:53
Hafliði Breiðfjörð

Fylkir ræðir við Þórhall - afsökunarbeiðnir út í loftið

Fylkir ræðir við Þórhall - afsökunarbeiðnir út í loftið
Canon

Mynd: fylkir.com

Ámundi Halldórsson formaður knattspyrnudeildar Fylkis fundaði með Þórhalli Dan Jóhannessyni í gærkvöld um mál hans en Þórhallur hefur átt í miklum deilum við félagið að undanförnu í fjölmiðlum og þá aðallega eftir þátt Ásgeirs Ásgerssonar formanns meistaraflokksráðs félagsins. Þetta kom fram í Fréttablaðinu í morgun en Ámundi er að reyna að ná sátt í málið.

Í Fréttablaðinu var einnig rætt við Sævar Þór Gíslason framherja félagsins sem kom öllum að óvörum í gær og skrifaði undir samning við félagið eftir deilur í fjölmiðlum. Sævar segist í blaðinu hafa fengið afsökunarbeiðni frá Ásgeiri og hann hafi beðist afsökunar á móti, þó hann hafi ekki þurft að afsaka neitt.

Orðrétt sagði Sævar við Fréttablaðið: ,,Það sem gerðist á miðvikudeginum var að Þorlákur þjálfari kom og talaði við mig og sagðist ekki sáttur með það að ég væri að fara frá félaginu. Hann bað mig að endurskoða ákvörðun mína og ég sagði að það þyrfti ýmislegt að breytast til þess að ég færi aftur að tala við félagið. Þeir hringdu síðan í mig og við töluðum saman. Þeir báðust í kjölfarið afsökunar á öllu og sama gerði ég. Ég þurfti samt ekkert að afsaka neitt."

Ásgeir vildi ekki í samtali við blaðið tjá sig um þessi ummæli Sævars um að hann hafi ekkert haft að afsaka því hann ætli ekki að munnhöggvast í blöðunum um málið.

Sævar sagði að lokum við Fréttablaðið að hann hafi farið betur yfir stöðuna og hugsað um hag félagsins og hann hafi talið sig skulda félaginu betra tímabil en hann bauð uppá síðasta sumar. Því hafi hann skrifað undir samning við félagið.

Sjá einnig:
















Fylkir ræðir við Þórhall - afsökunarbeiðnir út í loftið
Sævar Þór semur óvænt við Fylki! (Staðfest)
Valur og Fram hafa rætt við Þórhall Dan
Fylkismenn sendu frá sér yfirlýsingu í dag
Bjarni Þórður semur við Fylki
Fjögur lið vilja fá Þórhall Dan
Sævar Þór og Þórhallur Dan hættir hjá Fylki

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.