29.10.26 - 15:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Haddi ekki áfram hjá KA (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gerði KA að bikarmeisturum 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Jónasson verður samkvæmt heimildum Fótbolta.net ekki áfram þjálfari KA.
Haddi, eins og hann er oftast kallaður, átti eitt ár eftir af samningi sínum en verður ekki áfram hjá félaginu.
Haddi, sem er fyrrum landsliðs- og atvinnumaður, tók við liðinu haustið 2022 eftir að hafa áður verið leikmaður liðsins og aðstoðarþjálfari Arnars Grétarssonar. Undir hans stjórn komst liðið tvisvar sinnum í bikarúrslit og vannst seinni úrslitaleikurinn við Víking árið 2024. Það var fyrsti bikartitill í sögu KA.
Sumarið 2023 vann KA tvö Evrópueinvígi og var fyrir rúmu ári síðan nálægt því að slá danska liðið Silkeborg úr leik í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Tímabilið í ár var strembið, KA var í neðri hlutanum allt tímabilið og í ágúst var ákveðið að gera breytingu á þjálfarateyminu. Eiður Smári Guðjohnsen var fenginn inn í teymið og voru bæði Eiður og Haddi aðalþjálfarar liðsins. Ekki tókst að bjarga liðinu frá falli þrátt fyrir að stigasöfnunin hafi batnað á lokakaflanum.
Hvorki náðist í Hadda né Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, við vinnslu fréttarinnar.
Uppfært 16:20: KA hefur staðfest tíðindin, Haddi og KA hafa náð samkomulagi um starfslok.
„Knattspyrnudeild KA þakkar Hallgrími fyrir hans störf í þágu félagsins á undanförnum árum og þann árangur sem náðst hefur undir hans stjórn," segir m.a. í frétt á heimasíðu KA.