Fotbolti.net
30.03.26 - 18:24
Elvar Geir Magnússon

Búist við mörgum breytingum - Orri hvíldur?

Frá æfingu landsliðsins í Toronto í dag.

Frá æfingu landsliðsins í Toronto í dag.

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Íslenska landsliðið æfði á keppnisvellinum í Toronto í dag en á morgun leikur liðið gegn Haítí í seinni vináttulandsleik gluggans.

Haítí er eins og Kanada að búa sig undir þátttöku á HM í sumar en liðið er í 82. sæti heimslista FIFA, átta sætum neðar en Ísland.

Það má búast við mörgum breytingum á byrjunarliði Íslands en sögusagnir eru um að Hákon Arnar Haraldsson og Orri Steinn Óskarsson verði hvíldir í leiknum.

„Ég hef ekki spilað svona lengi í langan tíma, ég spilaði 60 mínútur með Real Sociedad um daginn en náði 68 í dag sem er bara frábært. Mér leið mjög vel inni á vellinum," sagði Orri eftir 2-2 jafnteflið gegn Kanada á laugardag en Orri er að komast á flug eftir meiðsli.
Arnar um Haítí leikinn: Gerum klárlega breytingar
TENGT EFNI

Arnar um Haítí leikinn: Gerum klárlega breytingar

Ef Orri verður hvíldur verður spennandi að sjá hvernig Arnar mun stilla þessu upp. „Okkur vantar kannski hreinræktaðar 'níur' í þessum glugga af ástæðum sem eru vel kunnar. Menn eru að spila með U21 landsliðinu og sumir eru meiddir," sagði Arnar eftir leikinn gegn Kanada.

Líklegt að Aron Einar og Gylfi verði í byrjunarliðinu
Fróðlegt verður að sjá byrjunarliðið á morgun en ég ætla að giska á að reynsluboltarnir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson komi báðir inn í liðið.

Það kæmi ekki á óvart ef Hákon Rafn Valdimarsson markvörður fengi þennan leik. Brynjólfur Willumsson verður væntanlega áfram í byrjunarliðinu og Kristall Máni Ingason gæti fengið byrjunarliðsleik.

Logi Tómasson og Arnór Sigurðsson voru ónotaðir varamenn í fyrri leiknum en gætu byrjað á morgun. Þá vonast Stefán Teitur Þórðarson og Mikael Anderson pottþétt eftir byrjunarliðssæti. Breiddin er góð í íslenska hópnum og spennandi að sjá hvernig Arnar leggur línurnar á morgun.
Kristall Máni Ingason í leiknum gegn Kanada.

Kristall Máni Ingason í leiknum gegn Kanada.

Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.