Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
banner
   mán 30. mars 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Defoe tekur við ensku utandeildarliði
Mynd: EPA
Jermain Defoe, fyrrum framherji Tottenham og fleiri félaga í úrvalsdeildinni, hefur verið ráðinn þjálfari Woking í utandeildinni á Englandi.

Defoe hefur ekki mikla reynslu af þjálfun eftir að hann lagði skóna á hilluna árið 2022. Hann gekk til liðs við Rangers árið 2019 og árið 2021 var hann ráðinn einn af bráðabirgðaþjálfurum liðsins eftir að Steven Gerrard yfirgaf félagið.

Hann var ráðinn til Tottenham eftir að skórnir fóru á hilluna og þjálfaði U18 liðið í um tvö ár.

Woking er í National League en það er deildin fyrir neðan D-deildina. Liðið situr í 11. sæti með 53 stig eftir 39 umferðir og á enn möguleika á að komast í umspil um sæti í D-deildinni.


Slapp
Athugasemdir
banner