Fotbolti.net
30.03.26 - 20:00
Elvar Geir Magnússon

Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga

Auglýsing
Ísak Bergmann Jóhannesson í leiknum gegn Kanada.

Ísak Bergmann Jóhannesson í leiknum gegn Kanada.

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
„Mér líst vel á þetta verkefni eins og alla landsleiki. Það er spenningur, það væri gaman að vinna Haítí," segir Ísak Bergmann Jóhannesson.

Á morgun leikur íslenska landsliðið gegn Haítí í seinni vináttulandsleik gluggans. Leikurinn hefst 16:30 að íslenskum tíma og verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Haítí er eins og Kanada að búa sig undir þátttöku á HM í sumar en liðið er í 82. sæti heimslista FIFA, átta sætum neðar en Ísland.
Búist við mörgum breytingum - Orri hvíldur?
TENGT EFNI

Búist við mörgum breytingum - Orri hvíldur?

„Þeir eru með líkamlega sterkt lið eins og Kanada, það er mikil orka í þeim. Kanada pressar aðeins hærra en þetta er öflugt lið og við verðum að vera klárir."

Talað hefur verið um að íslenska liðið sé að leka inn of mörgum mörkum. Er það eitthvað sem þarf að bæta?

„Jú, en ef þú horfir á Kanadaleikinn þá fá þeir eitt færi í leiknum. Við gefum þeim víti en í opnum leik vorum við alveg traustir varnarlega."

„Það er langt síðan við höfum farið ósigraðir út glugga. Við gerðum jafntefli gegn Kanada og það væri mjög sterkt að vinna Haítí og fara ósigraðir heim. Það væri mjög sterkt."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir Ísak nánar um landsleikina, um lífið í Köln og líka um Bestu deildina.
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.