Fotbolti.net
30.03.26 - 19:34
Elvar Geir Magnússon

Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur

Auglýsing
Jón Dagur í jafnteflisleiknum gegn Kanada.

Jón Dagur í jafnteflisleiknum gegn Kanada.

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Á morgun leikur íslenska landsliðið gegn Haítí í seinni vináttulandsleik gluggans. Leikurinn hefst 16:30 að íslenskum tíma og verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

„Það voru vonbrigði að vinna ekki síðasta leik en það er nýr leikur á morgun og við munum gera allt til að ná sigri," segir Jón Dagur Þorsteinsson, landsliðsmaður Íslands.
Búist við mörgum breytingum - Orri hvíldur?
TENGT EFNI

Búist við mörgum breytingum - Orri hvíldur?

Leikurinn verður klukkan 12:30 að staðartíma á virkum degi og var miðasalan var það dræm að ekki var talið að það stæði undir kostnaði að selja inn á leikinn. Því var ákveðið að leikurinn verður áhorfendalaus.

Er þetta eitthvað sem mun hafa áhrif?

„Nei vonandi ekki. Þetta verður smá eins og Covid leikur. Menn eru vanir því að spila án áhorfenda en auðvitað er skemmtilegraað spila með áhorfendur. Þegar allt kemur til alls er þetta bara fótbolti og landsleikur. Það er skrítnara að spila án áhorfenda en ætti ekki að hafa áhrif."

Haítí er eins og Kanada að búa sig undir þátttöku á HM í sumar en liðið er í 82. sæti heimslista FIFA, átta sætum neðar en Ísland.

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir Jón Dagur nánar um Haítí og fer einnig í NBA og Brann.
Leikið verður án áhorfenda á morgun.

Leikið verður án áhorfenda á morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.