Fotbolti.net
30.03.26 - 19:06
Elvar Geir Magnússon

Landsliðið fór á NBA - „Ekki skemmtilegasti leikur sem ég hef séð“

Toronto Raptors hefur unnið tvo heimaleiki á meðan íslenska landsliðið hefur dvalið í borginni.

Toronto Raptors hefur unnið tvo heimaleiki á meðan íslenska landsliðið hefur dvalið í borginni.

Canon

Mynd: EPA

Eimskip
Íslenska landsliðið hefur nú verið í Torontoborg í Kanada í eina viku. Liðið gerði 2-2 jafntefli gegn heimamönnum og á morgun er komið að leik gegn Haítí.

En við hvað hafa landsliðsmennirnir verið að sýsla þegar þeir hafa fengið frítíma? Jón Dagur Þorsteinsson var spurður að því og hvernig borgin væri að leika við menn?

„Hún er bara góð. Virkilega skemmtileg og gaman að kíkja út á kaffihúsin og svona. Við höfum verið að rölta um og fórum á NBA leik í gær. Það er nóg að gera hérna," segir Jón Dagur.

Toronto Raptors tók á móti Orlando Magic í gærkvöldi og vann 139-87 sigur. Stærstu tíðindi leiksins eru þau að Toronto tók skrið þar sem liðið skoraði 31-0 sem er met.

„Ekki skemmtilegasti körfuboltaleikur sem ég hef séð en það var skemmtileg upplifun. Það var flott stemning í höllinni."
Búist við mörgum breytingum - Orri hvíldur?
TENGT EFNI

Búist við mörgum breytingum - Orri hvíldur?

Einhverjir landsliðsmenn höfðu reyndar fengið nægan skammt af NBA þegar leikurinn var hálfnaður og létu sig hverfa heim á hótel í hálfleik.

Á morgun leikur Ísland gegn Haítí en leikurinn hefst klukkan 16:30 að íslenskum tíma; 12:30 að staðartíma, og verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Haítí er eins og Kanada að búa sig undir þátttöku á HM í sumar en liðið er í 82. sæti heimslista FIFA, átta sætum neðar en Ísland.

Jón Dagur Þorsteinsson.

Jón Dagur Þorsteinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.