Sjáðu atvikið: Átti Diogo Jota að vera fokinn útaf?

Salah og Jota skoruðu báðir í sigrinum fjöruga. Liverpool er komið í góða stöðu í Evrópudeildarbaráttunni eftir fjórða sigurinn í röð.

Mynd: EPA

Salah og Jota skoruðu báðir í sigrinum fjöruga. Liverpool er komið í góða stöðu í Evrópudeildarbaráttunni eftir fjórða sigurinn í röð.

Mynd: EPA
Liverpool komst í þriggja marka forystu á fyrsta stundarfjórðungi leiksins en gestirnir í Tottenham gáfust aldrei upp og komust grátlega nálægt því að gera jafntefli.
Richarlison jafnaði fyrir Tottenham á 93. mínútu en Diogo Jota, sem hafði komið inn af bekknum, skoraði sigurmark leiksins 99 sekúndum síðar.
Stuðningsmenn Tottenham eru þó sérstaklega óhressir með að Jota hafi gert sigurmarkið. Þeir telja að hann hafi átt að vera löngu fokinn af velli eftir hættuspark sem hæfði Oliver Skipp í framan á 80. mínútu.
Vert er að taka fram að stuðningsmenn Liverpool vildu sjá Oliver Skipp fjúka af velli í fyrri hálfleik þegar hann fór með takkana í Luis Diaz. VAR skoðaði atvikið en viðhafðist ekkert vegna þess að Skipp vann boltann og samstuðið var 'eðlilegt samstuð tveggja leikmanna sem eru að berjast um boltann'.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 0 | 0 | 0 |
| 2 | Aston Villa | 0 | 0 | 0 |
| 3 | Bournemouth | 0 | 0 | 0 |
| 4 | Brentford | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Brighton | 0 | 0 | 0 |
| 6 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 7 | Coventry | 0 | 0 | 0 |
| 8 | Crystal Palace | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Everton | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Hull City | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Ipswich Town | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Leeds | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Liverpool | 0 | 0 | 0 |
| 15 | Manchester City | 0 | 0 | 0 |
| 16 | Manchester Utd | 0 | 0 | 0 |
| 17 | Newcastle | 0 | 0 | 0 |
| 18 | Nott. Forest | 0 | 0 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 19 | Sunderland | 0 | 0 | 0 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |
| 20 | Tottenham | 0 | 0 | 0 |



