Franski miðjumaðurinn Eduardo Camavinga vill vera áfram hjá Real Madrid þrátt fyrir áhuga ýmissa stórvelda víðsvegar um Evrópu.
Camavinga er ekki með byrjunarliðssæti hjá Real og hefur verið gagnrýndur fyrir lélega frammistöðu á yfirstandandi tímabili.
Camavinga var fastamaður í byrjunarliðinu frá 2022 til 2024 en meiðslavandræði hafa verið að hrjá hann undanfarin misseri. Hann virðist vera búinn að missa byrjunarliðsætið á miðjunni undir stjórn Álvaro Arbeloa en hann er vongóður um að endurheimta sætið í sumar.
Real Madrid er í leit að nýjum aðalþjálfara þar sem það þykir ljóst að bráðabirgðaþjálfarinn Arbeloa verður ekki ráðinn í starfið.
Liverpool, Manchester United og Paris Saint-Germain eru meðal félaga sem hafa verið orðuð við Camavinga, sem er aðeins 23 ára gamall en hefur þegar spilað 219 keppnisleiki fyrir Real og unnið ógrynni titla.
Camavinga er með 29 landsleiki fyrir Frakkland og var í liðinu sem endaði í öðru sæti á síðasta heimsmeistaramóti. Búist er við að hann verði í hópnum sem fer á HM í sumar þrátt fyrir afar misjafnar frammistöður í treyju Real Madrid á tímabilinu.
20.04.2026 06:00
Sjö leikmenn gætu yfirgefið Real Madrid





