Fotbolti.net
30.05.12 - 13:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Ranieri ráðinn þjálfari Monaco (Staðfest)

Ranieri ráðinn þjálfari Monaco (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Claudio Ranieri tekur ekki við West Bromwich Albion þar sem sá ítalski hefur skrifað undir tveggja ára samning við Monaco.

Í yfirlýsingu frá franska félaginu segir að Ranieri hafi klárlega verið hæfasti kosturinn í starfið enda hefur hann gríðarlega reynslu.
Ranieri hefur þjálfað víða á Ítalíu; hjá Parma, Juventus, Roma og Inter, og var einnig stjóri Chelsea á sínum tíma.

Hann missti starfið hjá Chelsea eftir að hafa tapað fyrir Monaco í undanúrslitum Meistaradeildarinnar 2004.

Monaco hyggst reyna að rísa upp á ný en liðið er í frönsku B-deildinni eftir mikinn vandræðagang síðustu ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.