Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
banner
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
fimmtudagur 14. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
fimmtudagur 14. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
miðvikudagur 13. september
þriðjudagur 12. september
Undankeppni EM U21 landsliða
mánudagur 11. september
Undankeppni EM
sunnudagur 10. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
þriðjudagur 19. mars
CHAMPIONS LEAGUE: Playoffs - Women
Ajax W - Chelsea W - 17:45
SL Benfica W - Lyon - 20:00
banner
lau 30.maí 2020 11:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 10. sæti: HK

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að HK-ingar endi í 10. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. HK endar í tíunda sæti ef spáin rætist.

Leifur Andri Leifsson og Arnar Freyr Ólafsson.
Leifur Andri Leifsson og Arnar Freyr Ólafsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lykilmaðurinn Valgeir Valgeirsson.
Lykilmaðurinn Valgeir Valgeirsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn knái Atli Arnarson.
Miðjumaðurinn knái Atli Arnarson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birnir Snær Ingason.
Birnir Snær Ingason.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bakvörðurinn trausti Birkir Valur Jónsson.
Bakvörðurinn trausti Birkir Valur Jónsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Gunnarsson.
Bjarni Gunnarsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Bjarki Arnarsson aðstoðarþjálfari og Ásgeir Börkur Ásgeirsson.
Viktor Bjarki Arnarsson aðstoðarþjálfari og Ásgeir Börkur Ásgeirsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. HK 43 stig
11. Grótta 20 stig
12. Fjölnir 14 stig

Um liðið: HK var nýliði í fyrra og var spáð stuttri viðveru í deildinni. En liðið kom á óvart og fagnaði flottum sigrum gegn FH, KR og Breiðabliki; liðunum sem enduðu í þremur efstu sætunum. Niðurstaðan 9. sæti. Sagan sýnir að tímabil tvö í efstu deild reynist oft erfiðara og HK-ingar þurfa að spýta í lófana til að halda áfram í þeirri vegferð að festa sig í sessi í efstu deild.

Þjálfari - Brynjar Björn Gunnarsson: Spennandi þjálfari sem á lof skilið fyrir það sem hann hefur náð úr HK-ingum síðustu tvö ár. Hann smíðaði mjög öfluga liðsheild og leikmenn eru með sín hlutverk algjörlega á hreinu. Það hefur ríkt skynsemi og yfirvegun í kringum aðgerðir Brynjars og Kópavogsfélagsins síðustu ár.

Styrkleikar: Færni þjálfarans hefur sýnt sig ítrekað. Liðsheildin er þétt og sterk, skipulagið gott og varnarleikurinn er öflugur. Aðeins tvö lið fengu færri mörk á sig en HK á síðasta tímabili. Svo er það Kórinn, heimavöllurinn. Andstæðingarnir eiga oft erfitt með að gíra sig að skella sér inn í höll yfir sumarið og það eykur líkurnar á sérstökum úrslitum.

Veikleikar: Sóknarleikurinn. HK vantar sárlega traustan markaskorara, markahæstu menn liðsins í fyrra voru með fimm mörk og það voru kant- og miðjumaður. Breiddin er ekki mikil og það má ekki mikið út af bregða. Ef menn detta í meiðsli getur HK lent í miklum vandræðum, sérstaklega í sóknarhlutanum. Reynt var að styrkja liðið á liðnum vetri en það gekk alls ekki að óskum. Fyrstu þrír leikir HK í deildinni eru hrikalega brött brekka.

Lykilmenn: Arnar Freyr Ólafsson og Valgeir Valgeirsson. Arnar þaggaði rækilega í efasemdarröddum í fyrra og sýndi að hann er markvörður í úrvalsdeildarklassa. Valgeir er aðeins 17 ára en er samt líklega besti leikmaður liðsins. Ákaflega erfiður viðureignar á vængnum og setur tóninn í liðinu.

Gaman að fylgjast með: Varnarmaðurinn Guðmundur Þór Júlíusson missti af síðasta tímabili eftir að hafa slitið krossband síðla árs 2018. Hann er ákveðinn í að láta að sér kveða í efstu deild í sumar og gæti styrkt varnarleik HK enn frekar. Ásgeir Börkur Ásgeirsson sýndi sínar bestu hliðar í fyrra og svo er það sóknarleikmaðurinn Ari Sigurpálsson, 17 ára, sem fór út til Bologna. Líkur eru á því að hann spili með HK í sumar en það hefur ekki verið staðfest.

Spurningarnar: Mun 'second season' heilkennið herja á HK-inga? Hver á að skora mörkin? Klárar Valgeir tímabilið hér á landi?

Völlurinn: Kórinn. HK er með innanhúss höll sem aðalvöll, eitthvað sem þekkist á fáum stöðum í heiminum og telst umdeilt. Stemingin á leikjum liðsins getur oft verið furðuleg en HK-ingum líður vel inni og kvarta ekki.

Fyrirliðinn segir - Leifur Andri Leifsson
„Þetta kemur mér í raun ekki á óvart að þetta sé ykkar spá þegar þið skoðið komnir/farnir listann. Aftur á móti líður mér og strákunum vel á leið inn í sumarið, við erum búnir að endurheimta leikmenn úr meiðslum og aðrir að koma inn í heilt tímabil með okkur, það hefur margt jákvætt verið bætt í kringum liðið á síðastliðnum mánuðum. Við erum komnir með sterka umgjörð í kringum styrktarþjálfun, sjúkraþjálfun og andlega þjálfun. Við erum búnir að koma litlu hlutunum á næsta stig og ég trúi því að með þeim bætingum og þeim sterka kjarna sem við höfum að þá ættum við að geta bætt okkur frá síðasta tímabili. Okkar markmið er að gera betur en í fyrra og halda áfram að þroskast sem félag og leikmenn og halda áfram að byggja þann glæsilega klúbb sem býr í HK."

Komnir:
*

Farnir:
Andri Jónasson í Þrótt V.
Björn Berg Bryde í Stjörnuna (Var á láni)
Brynjar Jónasson í Þrótt V.
Emil Atlason í Stjörnuna
Hörður Árnason hættur
Máni Austmann Hilmarsson í Leikni R.
Viktor Bjarki Arnarsson hættur

*Bakvörðurinn Hörður Árnason tók fram skóna aftur eftir að hafa ákveðið að hætta eftir síðasta tímabil

Fyrstu fimm leikir HK:
14. júní HK - FH
20. júní KR - HK
28. júní HK - Valur
4. júlí Grótta - HK
8. júlí ÍA - HK

Sjá einnig:
Hin hliðin - Valgeir Valgeirsson

Leikmenn HK sumarið 2020:
25. Arnar Freyr Ólafsson
1. Sigurður Hrannar Björnsson
12. Hjörvar Daði Arnarsson
6. Birkir Valur Jónsson
4. Leifur Andri Leifsson
5. Guðmundur Þór Júlíusson
23. Hafsteinn Briem
20. Alexander Freyr Sindrason
14. Hörður Árnason
21. Hörður Máni Ásmundsson
18. Atli Arnarsson
11. Ólafur Örn Eyjólfsson
10. Ásgeir Marteinsson
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
8. Arnþór Ari Atlason
7. Birnir Snær Ingason
29. Valgeir Valgeirsson
9. Bjarni Gunnarsson
17. Breki Muntaga Jallow
22. Jón Kristinn Ingason
3. Ívar Orri Gissurarson
19. Arian Ari Morina
Jón Arnar Barðdal
Andri Már Harðarson
Þorsteinn Örn Bernharðsson
Valdimar Einarsson
Emil Skorri Þ. Brynjólfsson
Patrik Hermannsson

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Benedikt Bóas Hinriksson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Magnús Már Einarsson, Sverrir Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir
banner
banner