30.06.04 - 12:49
Larsson til Barcelona (Staðfest)

Larsson kynntur fyrir blaðamönnum

Larsson kynntur fyrir blaðamönnum

Eins og búist var við skrifaði Henrik Larsson undir eins árs samning við Barcelona í dag. Hann flaug í gegnum læknisskoðunina í morgun og skrifaði í kjölfarið undir samninginn eins og sést á myndinni hér fyrir neðan.
Larsson er í frábæru formi þrátt fyrir aldurinn en hann verður 33 ára í september. Læknir liðsins Jordi Ardevol var ánægður með læknisskoðunina:
"Larsson hefur hugsað vel um sig á ferlinum og það er ástæðan fyrir því að hann er í svona góðu formi. Þetta er leikmaður sem á fleiri tímabil eftir en yngri leikmaður en hann sem hefur ekki hugað jafn vel að sér."
Eins og við greindum frá í morgun valdi Larsson sér númerið 17. Þetta styrkir lið Frank Rijkaard enn meira en Barcelona gekk áður frá kaupunum á þeim Ludovic Giuly og Juliano Belletti.
Þá eru þeir alls ekki hættir og búast má við fleiri nýjum leikmönnum á Nou Camp í sumar. Sá sem er núna efstur á óskalistanum er Deco og er fastlega gert ráð fyrir því að hann fari til Katalóníurisanna.